14.12.2022

Starfsáætlun tekin úr sambandi

Forseti tilkynnti við upphaf þingfundar sl. mánudag að starfsáætlun yrði tekin úr sambandi frá og með miðvikudegi, deginum í dag. Í því felst að reglulegir þingfundatímar raskast, sem og fundatími nefnda, auk þess sem þingfundadögum getur fjölgað ef þörf er á til að ljúka afgreiðslu mála fyrir frestun þingfunda og jólahlé.